
FLY Racing
Fly Racing er rótgróið jaðaríþróttamerki sem býður upp á hjálma, skó, fatnað og margt fleira fyrir íþróttir eins og Motocross, mótorhjól, vélsleða, BMX og vatnaíþróttir. Dreifing Fly Racing nær til yfir 40 landa um allan heim. Svo sama hvaða íþrótt þú stundar, þá er alltaf eitthvað sem passar í hinu breiða úrvali Fly Racing. Þeir sem starfa hjá Fly Racing eru hópur mótorhjólaáhugamanna sem leggja metnað sinn í að framleiða bestu vörurnar fyrir allar gerðir ökumanna, hvort sem þeir eru atvinnumenn eða áhugamenn. Fly Racing var stofnað árið 1996 í Bandaríkjunum og byrjaði sem framleiðandi á stýrum og hjálmum fyrir mótorhjól. Síðan þá hefur vörumerkið þróast í að vera eitt af ört vaxandi vörumerkjunum í heimi akstursíþrótta. Fly hefur styrkt þekkta Motocross-ökumenn eins og Trey Canard og Andrew Short.







































