
RK Chain
Hið japanska RK Chain var stofnað árið 1932 undir nafninu „The Shiga Factory of Takasago Tekko K.K“ og hóf starfsemi sína á því að framleiða lamir. Á fimmta og sjötta áratugnum framleiddi fyrirtækið ýmsa íhluti í margar gerðir farartækja, allt frá reiðhjólum til flugvéla. Árið 1953 hóf það framleiðslu á keðjum fyrir mótorhjól. Þökk sé mikilli eftirspurn eftir O-hringakeðjum á níunda áratugnum fékk RK Chain byr undir báða vængi og skapaði sér orðspor sem nýstárlegt og framsækið fyrirtæki. Í dag er RK Chain öflugt vörumerki og þekkt fyrir að framleiða keðjur úr hágæðaefnum fyrir hámarksstyrk, endingu og afköst. Honda, Suzuki, Yamaha og Kawasaki eru á meðal helstu viðskiptavina RK Chain. RK Chain framleiðir keðjur sem mæta fjölbreyttum kröfum í mótorhjólamennsku og motocrossi, hvort sem það er til tómstunda eða keppni.








