
K&N Filters
K&N Filters var stofnað í Riverside í Kaliforníu snemma á sjöunda áratugnum af þeim Ken Johnson og Norm MacDonald. Ken og Norm (K & N) seldu mótorhjól og mótorhjólahluti á sama tíma og þeir styrktu verksmiðjulið. Með því að styrkja keppnisliðið uppgötvuðu þeir að mikil þörf var á betri síum og þeir hófust handa við að þróa hugmynd að því hvernig mætti bæta afköst og sjálfbærni loft- og olíusía. Árið 1969 kynnti K&N til sögunnar fjölnota loftsíu úr bómull og í kjölfarið óx K&N Filters jafnt og þétt. Loftsíur frá K&N eru hannaðar til að skila miklu og nánast óhindruðu loftflæði ásamt mjög góðri síun til að tryggja lengri líftíma. Leyndarmálið á bak við velgengni K&N liggur í einstökum eiginleikum síunnar sem var þróuð upprunalega. Loftsíurnar eru þvoanlegar, fjölnota og hannaðar til að endast út líftíma vélarinnar, hvort sem er í bíl eða á mótorhjóli. Undir lok níunda áratugarins setti K&N á markað nýstárlegar síur sem efldu fyrirtækið enn frekar. Olíusíur frá K&N innihalda nútímalega síu úr gerviefnum, hannaða fyrir hámarksflæði án þess að hafa áhrif á olíuþrýsting. Í dag er K&N Filters einn af leiðandi framleiðendum á síum og býður upp á meira en 5.000 vörur með dreifingu í yfir 30 löndum.

























