
FOX Racing Shox
FOX Racing Shox var stofnað árið 1974 af Bob Fox í Watsonville í Kaliforníu. Fyrirtækið hóf göngu sína sem lítill dreifingaraðili fjöðrunarhluta fyrir Motocross. Í dag er það á meðal fremstu demparaframleiðenda heims. Þeir framleiða eigin hluti fyrir mótorhjól, bíla, torfæruhjól, fjórhjól, vélsleða og fjallahjól.
