
Interphone
Cellular Italia var stofnað árið 1990 sem dreifingaraðili fyrstu farsímanna. Á fyrstu árunum var ending rafgeyma í símum mjög lítil, sem varð til þess að Cellular Italia hóf framleiðslu á sínum fyrstu eigin aukahlutum: hleðslutæki fyrir rafgeymi til notkunar í bíl. Árið 2005 kom fyrsta Bluetooth Interphone tækið frá Cellular Italia á markað. Interphone þótti mikil nýjung í samskiptum milli mótorhjólamanna, sem á þeim tíma notuðu enn úrelt samskiptakerfi með snúrum. Vegna mikils áreiðanleika og notagildis Interphone hafa tækin áunnið sér mikið traust notenda í gegnum árin. Interphone er vörumerki sem í dag er þekkt fyrir hágæða nýstárlegar vörur og samskiptakerfi sem eru hinn fullkomni förunautur mótorhjólamanna á veginum.































