Þín trausta verslun fyrir ævintýri á vegi og utan vega

Brands /UFO
UFO

UFO

Sagan hófst árið 1977 þegar ungur og kraftmikill Ítali að nafni Vito Consoloni ákvað að stofna UFO Plastics í 120 ferfeta bílskúr. Consoloni hafði lengi dreymt um að stofna eigið fyrirtæki og bar mikla ástríðu fyrir Motocross. Hann óraði líklega ekki fyrir því að þetta hógværa fyrirtæki með aðeins þrjá starfsmenn yrði eitt stærsta fyrirtækið á markaðnum í framleiðslu á hlífðarbúnaði fyrir ýmsar jaðaríþróttir. Sama hvaða jaðaríþrótt þú hefur áhuga á, þá geturðu treyst því að UFO bjóði upp á hlífðarbúnað sem hentar. Hvort sem það er Motocross, Enduro, fjallahjólreiðar, BMX eða vetraríþróttir, þá hefur UFO allt sem þú þarft, framleitt með bestu hönnun og gæði að leiðarljósi. Hjálmar, bakhlíf, hálshlíf, plastsett, hlífðargleraugu, hanskar, stígvél, treyjur og buxur eru dæmi um mikið úrval UFO. Aðeins bestu, léttustu og endingargóðustu efnin eru notuð við framleiðslu á búnaði frá UFO. Í dag er UFO með 8.000 ferfeta höfuðstöðvar í Písa, yfir 30 ára reynslu og þúsundir söluaðila um allan heim. UFO hefur náð miklum árangri með því að velja ávallt bestu efnin af kostgæfni, með áherslu á öryggi, gæði og flotta, hagnýta hönnun.

Raða:
0 niðurstöður