
Supersprox
Supersprox er stærsti framleiðandi tannhjóla úr áli fyrir mótorhjól í Evrópu og Norður-Ameríku, en ástríða þeirra liggur í framleiðslu á Supersprox-stealth. Þetta er vara sem þeir fundu upp, þróuðu og fengu einkaleyfi fyrir. Þetta er tæknilega fullkomnasta og stórglæsilegasta tannhjól í heimi. Framleiðslustöð Supersprox í Prag í Tékklandi er búin öllum þeim vélum sem hugsast getur til framleiðslu á Supersprox-stealth tannhjólum. Með rúmlega 50 starfsmenn geta þeir brugðist skjótt við nýjungum í tækni, á sama tíma og þeir búa yfir skipulagi vel rekins og þroskaðs fyrirtækis. Samstarf þeirra við japanska og evrópska mótorhjólaframleiðendur hefur hjálpað til við að móta ríka áherslu á smáatriði. Lýsa má ferli Supersprox sem afar nákvæmu, samviskusömu og smámunasömu, en lokaniðurstaðan er hrein fullkomnun. Árið 2007 opnaði Supersprox systurfyrirtækið Supersprox Inc (Riverside, Kaliforníu), þar sem þeir dreifa hágæða tannhjólum og styrkja marga afburða ökumenn, svo sem Mike Alessi, Kyle Chisholm, Bobby Kiniry og Jake Kanada.