
Five
Five var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá lagt 100% af tíma sínum og auðlindum í að þróa fullkomið og tæknilega hannað úrval hanska fyrir mótorhjólaíþróttina. Markmið Five frá upphafi hefur verið að vera númer eitt í heiminum í framleiðslu og sölu á mótorhjólahönskum. Five sérhæfir sig eingöngu í framleiðslu á hönskum, ólíkt mörgum öðrum vörumerkjum sem selja mótorhjólahanska einungis sem aukabúnað. Hanskar Five eru þróaðir í samstarfi við bestu ökuþóra heims og hóp sérhæfðra verkfræðinga og hönnuða. Unnið er út frá fjórum lykilþáttum: öryggi, þægindum, tækni og hönnun. Five leitast við að bjóða ávallt upp á hanska sem mæta þörfum og væntingum neytenda.
11 niðurstöður










