
Akrapovic
Akrapovic var stofnað árið 1990 af Igor Akrapovic. Þekking hans á pústkerfum og mótorhjólum kom til vegna persónulegrar reynslu hans þegar hann ók og keppti í tíu ár á bæði innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Á keppnisferli sínum komst Akrapovic að því að það vantaði tilfinnanlega hágæða pústkerfi sem væru aðgengileg almenningi. Kerfin sem voru í boði voru tæknilega ófullnægjandi, oft gerð úr þungu stáli, og þau kerfi sem voru sæmileg kostuðu of mikið fyrir meðalviðskiptavininn. Akrapovic ákvað þá einfaldlega að byrja að smíða sín eigin pústkerfi. Til að bjóða upp á bestu vörurnar var þunga stálinu skipt út fyrir léttari efni eins og koltrefjar og títan. Ásamt fimm öðrum hóf Akrapovic reksturinn og það sem eitt sinn var nýsköpunardrifinn hópur sex einstaklinga er nú stórt og áberandi fyrirtæki með yfir 500 starfsmenn. Framtíðarsýn Akrapovic var skýr frá upphafi og þeir halda fast í hana enn þann dag í dag: að framleiða bestu og vönduðustu pústkerfin sem eiga að vera í boði fyrir alla, jafnt keppnislið sem almenning. Aðeins það besta er nógu gott!




