
USWE
USWE var stofnað árið 2006 af sænska frumkvöðlinum Karl-Johan Engdahl. Eftir margra ára starf í akstursíþróttum áttaði Karl-Johan sig á því að það var hreinlega ekki til neitt gott vökvakerfi hannað sérstaklega fyrir akstursíþróttir. Hann hóf því að hanna sitt eigið vökvakerfi og þannig varð vörumerkið USWE til. Allt frá upphafi hefur USWE unnið náið með fremstu ökumönnum í Motocross og Enduro að því að þróa hagnýt og hágæða vökvakerfi. USWE hóf einnig samstarf við Leatt fyrir nokkrum árum þar sem þau þróuðu vökvakerfi sem passar við hálshlífar frá Leatt. Frá stofnun árið 2006 hefur USWE byggt upp sterkt orðspor vegna gæða og frábærrar virkni, og vörur þeirra eru mikið notaðar af ökumönnum í öllum flokkum í Enduro, jafnt atvinnumönnum sem öðrum iðkendum íþróttarinnar.







































