
Maxima
Maxima Racing Oils framleiðir olíur fyrir bæði atvinnumenn og áhugafólk, karla og konur sem vilja reyna á mörkin og skora á sjálf sig. Maxima er fyrirtæki innblásið af kappakstri sem þróar, framleiðir og dreifir ýmiss konar afkastamiklum olíum, með áherslu á að viðhalda ávallt hæstu gæðum og framleiða vörur sem skara fram úr í samkeppni. Maxima var stofnað árið 1979 og er með höfuðstöðvar í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Í nánu samstarfi við atvinnulið í kappakstri þróar Maxima breitt úrval markaðsleiðandi vara sem eru dreifðar og notaðar í yfir 50 löndum um allan heim. Sama hvaða sport þú stundar, hvort sem það eru mótorhjól, motocross, vélsleðar eða fjórhjól, þá er til olía frá Maxima sem hentar þér. Olíurnar frá Maxima eru þekktar fyrir einstaklega góða smur- og verndareiginleika, auk þess sem þær skilja eftir sig lágmarks útfellingar. Einfaldlega: minni lykt, minni reykur og hámarks smurning!