
Lucas Oil
Árið var 1989 þegar vörubílstjórinn Forrest Lucas og eiginkona hans Charlotte stofnuðu Lucas Oil Products. Þau starfuðu við vöruflutninga og fannst þau þurfa afkastameiri olíur. Markmið þeirra var að setja á markað bestu línuna af smurefnum og gera hana aðgengilega öllum neytendum. Lucas hóf að kaupa ýmis íblöndunarefni, skoðaði hvernig þau virkuðu og bjó fljótlega til eigin olíublöndu sem hann seldi á ýmsum áningarstöðum. Olíurnar frá Lucas seldust svo vel að hann gat fljótlega valið á milli þess að halda áfram í vöruflutningum eða snúa sér alfarið að olíubransanum. Og þannig hófst saga Lucas Oil. Í dag er Lucas Oil einn af leiðandi framleiðendum heims á olíum fyrir eftirmarkað bíla. Á síðustu 20 árum hafa þeir unnið með ýmsum kappakstursliðum að því að þróa vörur sínar við hinar kröfuhörðustu aðstæður. Velgengni Lucas Oil byggist á harðri vinnu, einstakri línu gæðavara og óbilandi skuldbindingu gagnvart ánægju viðskiptavina. Með olíu frá Lucas Oil færð þú lengra tímabil á milli olíuskipta, stöðuga smurningu og hærri olíuþrýsting, sem gefur ökutækinu lengri líftíma og tryggir hámarksvernd og afköst.