
SBS
SBS (Scandinavian Brake Systems) var stofnað árið 1963 af verkfræðingnum Henning Hansen frá Óðinsvéum í Danmörku. Fyrirtækið, sem hét OBTEC, vann að endurnýjun og viðgerðum á hemlatromlum og hemlaborðum. Á áttunda áratugnum stækkaði fyrirtækið mikið og ný verksmiðja var byggð í Svendborg í Danmörku. Vörumerkið SBS var kynnt til sögunnar ásamt úrvali asbestlausra hemlaklossa fyrir mótorhjól. Árið 2003 breytti fyrirtækið nafni sínu í OBTEC Scandinavian Brake Systems og velgengni framleiðslunnar hélt áfram. Í dag er SBS leiðandi framleiðandi á heimsvísu á hemlaklossum fyrir mótorhjól og motocross og þeir bjóða upp á heildarlínu af hemlaklossum sem auka afköst og eru hannaðir fyrir sérstaka notkun, svo sem götuakstur, Off-Road og kappakstur.