
Rizoma
Frá byrjun árs 2000 hafa ítölsku Rigolio-bræðurnir, Fabrizio og Fabio, hannað einstaka aukahluti og varahluti fyrir mótorhjól. Það var eftirspurn eftir flottum baksýnisspeglum fyrir mótorhjól sem veitti Rigolio-bræðrunum innblástur til að stofna fyrirtækið Rizoma. Fabio starfaði sem framleiðsluverkfræðingur og Fabrizio sem hönnuður þegar þeir ákváðu að taka málin í eigin hendur og hefja framleiðslu á baksýnisspeglum. Árið 2001 kom fyrsti vörulisti Rizoma út og innihélt hann eingöngu baksýnisspegla. Söluaðilar á Ítalíu, í Frakklandi og Þýskalandi hófu að selja baksýnisspegla frá Rizoma, en árið 2004 fannst bræðrunum kominn tími til að stækka og auka vöruúrvalið. Nokkrir hönnuðir voru ráðnir og ráðist var í miklar fjárfestingar. Í dag inniheldur vörulisti Rizoma meira en 1.500 vörur, en margar þeirra eru hannaðar fyrir kappakstur. Þótt Rizoma sé fyrst og fremst þekkt fyrir glæsilegar hönnunarvörur, hafa þeir sýnt kappakstri vaxandi áhuga síðan 2008 og starfa með mörgum liðum, þar á meðal LCR Honda og San Carlo Honda Gresini, auk ökuþóranna Tony Elias og Randy de Puniet.