
Dunlop
Árið 1888 var Dunlop stofnað af John Boyd Dunlop í Belfast á Norður-Írlandi. Dunlop fylgdist með ungum syni sínum eiga í erfiðleikum með að hjóla á þríhjólinu sínu, sem var með gegnheilum gúmmídekkjum, á steinlagðri götu. Þetta gekk hægt og virtist óþægilegt fyrir litla strákinn. Dunlop ákvað að reyna að gera syni sínum léttara fyrir með því að vefja þunnum gúmmíörkum utan um dekkin á þríhjólinu. Hann límdi þær síðan saman og fyllti dekkin af lofti með boltadælu. Stofnandi Dunlop hafði þannig þróað fyrsta loftpúðakerfi heimsins og lagt grunninn að fyrsta loftfyllta dekkinu. Startskotið var þar með riðið af fyrir Dunlop Pneumatic Tyre Co. Ltd. Það tók innan við ár fyrir uppfinningu Dunlop að rata á kappakstursbrautina fyrir mótorhjól. Með því að nota loftfyllt dekk frá Dunlop gat óreyndur ökumaður auðveldlega sigrað þá reyndari. Árið 1890 opnaði Dunlop fyrstu dekkjaverksmiðjuna í Dublin og árið 1898 fluttist starfsemin til Englands og þaðan til Bandaríkjanna og Japans. Dunlop varð fljótt að alþjóðlegu stórfyrirtæki og eru dekk þeirra nú framleidd og seld um allan heim. Þökk sé mikilli reynslu Dunlop af kappakstri mótorhjóla og glæsilegum árangri er Dunlop nú mjög virt nafn meðal áhugafólks um mótorhjól.