
CTEK
CTEK var stofnað árið 1997 og er systurfélag Creator Technical Development AB. Sagan hófst þegar Creator fékk það verkefni hjá viðskiptavini að hanna og þróa nýja rafgeyma og hleðslutæki. Í kjölfarið var ákveðið að stofna fyrirtæki og byggja upp viðskiptamódel í kringum hleðslutæki, og þannig varð CTEK til. CTEK vildi hverfa frá hefðbundinni notkun hleðslutækja, þar sem þau voru aðeins notuð sem lausn þegar rafgeymirinn var þegar tómur, yfir í að koma í veg fyrir að hann tæmdist. Hleðslutæki frá CTEK mæla og eiga í stöðugum samskiptum við rafgeyminn og hlaða hann aðeins þegar þess er þörf. Þetta kemur í veg fyrir hættu á rangri hleðslu og þar sem rafgeymirinn er virkjaður samhliða hleðslunni verður líftíminn mun lengri. Ef rafgeymir fær rétta umhirðu og hleðslu lengist líftími hans verulega og hann getur endst um 2-3 sinnum lengur en rafgeymir sem fær ekki reglulegt viðhald. CTEK á fjölmörg einkaleyfi sem gera hleðslutæki þeirra einstök og fyrirtækið hefur í gegnum árin þróað mikla nýsköpunargetu sem drífur það stöðugt áfram. CTEK leggur metnað sinn í að hleðslutækin uppfylli allar kröfur um umhirðu rafgeyma og taki ávallt mið af framtíðarþörfum viðskiptavina. CTEK er með starfsemi í Bandaríkjunum og Kína, en höfuðstöðvarnar og vöruþróunin eru í Vikmanshyttan í Dölunum í Svíþjóð.