
Woody's
Á miðjum sjöunda áratugnum var gífurlegur vöxtur í vélsleðaiðnaðinum, sérstaklega í kappakstri. James Musselman og Woody Kozlow áttuðu sig á auknum vinsældum vélsleða, sem var lykillinn að velgengni þeirra. James og Woody þróuðu control steel, það fyrsta úr harðmálmi. Woody fór úr því að vera lítill rekstur í hlutastarfi yfir í að verða alþjóðlegt fyrirtæki. Starfsemi Woody's er staðsett í Michigan í Bandaríkjunum. Woody's er viðurkennt á heimsvísu sem fremsti framleiðandi iðnaðarins á aukahlutum fyrir vélsleða og vörumerki þeirra þykir mjög áreiðanlegt, samheiti yfir gæði og afköst. Í kappakstursliðum Woody's hafa verið margir af fremstu vélsleðamönnunum, þar á meðal Bob Eastman, Brian Musselman, Blair Morgan, Jacques Villeneuve, Steve Houle, Tim Bender og Dave Wahl. Ásamt Woody tókst þessum vélsleðamönnum að ná frábærum árangri og skara fram úr mörgum keppinautum.