
Rinaldi
Rinaldi hóf starfsemi árið 1969 með framleiðslu á efnum til dekkjasólunar (endurnýtingu á dekkjaskrokkum með því að setja á nýtt slitlag). Árið 1974 jók Rinaldi framleiðsluna með því að bæta við slöngum og árið 1980 hóf fyrirtækið framleiðslu á dekkjum. Í dag framleiðir Rinaldi dekk og slöngur fyrir Off-Road og mótorhjól á vegum, vespur, skellinöðrur, dráttarvélar, tengivagna og vélalaus iðnaðarökutæki. Rinaldi framleiðir um 220.000 slöngur og 250.000 dekk á mánuði og hjá fyrirtækinu starfa um 700 manns. Rinaldi flytur út dekk sín til söluaðila í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og Ástralíu, og dekk þeirra eru notuð af mörgum þekktum atvinnuökumönnum um allan heim.
0 niðurstöður