
Carlisle
Carlisle var stofnað árið 1917 í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum af Charles S. Moomy, sem á þeim tíma framleiddi og seldi slöngur í dekk. Í seinni heimsstyrjöldinni framleiddi Carlisle slöngur úr gervigúmmíi þar sem aðgangur að náttúrulegu gúmmíi frá Austur-Indíum stöðvaðist. Eftir stríðið neyddist Carlisle til að breyta um stefnu vegna verulegs taps fyrirtækisins. Þeir einbeittu sér þá að hemlum og núningsvörum og með þeirri breytingu rétti Carlisle úr kútnum fjárhagslega, hægt en örugglega. Carlisle hélt áfram að kaupa upp nokkur önnur fyrirtæki, sem gerði þeim kleift að auka fjölbreytni í vöruúrvali sínu enn frekar. Þessi þróun og fjölbreytni hefur haldið áfram allt til dagsins í dag, en nú býður fyrirtækið upp á margs konar vörur fyrir ólíka markaði. Dekk, hjól, drifreimar, hemlar, ljósleiðarakaplar, eldunaráhöld og byggingarefni eru seld og þeim dreift til viðskiptavina í akstursíþróttum, hernaði, iðnaði og stóreldhúsum. Carlisle býður upp á mikið úrval fyrir flesta. Innan akstursíþrótta er Carlisle fyrst og fremst þekkt fyrir endingargóðar drif- og viftureimar. Frá stofnun árið 1917 hefur Carlisle breytt mörgum góðum hugmyndum í nýstárlegar vörur. Með 11.000 starfsmenn um allan heim leggur Carlisle áherslu á að styrkja vörumerki sitt enn frekar með því að bjóða viðskiptavinum sínum ætíð óviðjafnanlega þjónustu og allra bestu vörurnar.